Hoppa yfir valmynd

Fundaröð um samstarfsmöguleika íslensks atvinnulífs

Íslandsstofa, í samstarfi við utanríkisráðuneytið stendur fyrir fundi sem ætlað er að beina sjónum íslensks atvinnulífs og sérfræðinga að samstarfsmöguleikum í þróunarríkjum og mikilvægi þess að byggja upp efnahag fátækari ríkja. Einkageirinn getur lagt gríðarmikið af mörkum til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem eru sameiginleg markmið okkar allra. Með því að renna styrkari stoðum undir atvinnu- og viðskiptalíf í þessum löndum geta íslensk fyrirtæki og sérfræðingar jafnframt eflt samkeppnishæfni sína á framtíðarmörkuðum. Fundurinn er liður í fundaröð um atvinnulífsuppbyggingu í þróunarsamvinnu.
 
Kynningarfundur um samstarf við atvinnulífið í þróunarríkjum verður fimmtudaginn 15. febrúar nk. kl.  09:30 hjá Íslandsstofu, 4. hæð í Grósku. Rafræn þátttaka er einnig möguleg.

Skráning á fundinn er hér.
Meðal efnis verður:

  1. Almenn kynning á tæknilegri aðstoð íslenskra sérfræðinga í þróunarsamvinnu (ráðgjafalistum fyrir sérfræðinga).
  2. Kynning á samningi við Development Aid, gagnagrunni sem verður aðgengilegur öllum íslenskum fyrirtækjum og felur m.a. í sér:
    - Upplýsingar um alþjóðleg viðskiptatækifæri (útboð)
    - Upplýsingar um fjármögnunarmöguleika um allan heim (styrki)
    - Upplýsingaöflun og greiningu á framlaga- og fjármögnunarstofnunum
    - Rafrænn vettvangur fyrirtækjastefnumóta
    - Greiningartæki til að meta hugsanlega samstarfsaðila og samkeppnisaðila
    - Upplýsingar fyrirtæki sem hafa komist á úrtakslista fyrir útboð þau sem hafa unnið útboðin.
    - Upplýsingar um fyrirtæki og einstaklinga sem sæta refsiaðgerðum (black listed).
  3. Kynning á Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífsins um þróunarsamvinnu sem opnað hefur á ný, fyrir styrkumsóknir íslenskra fyrirtækja.
  4. Spurningar og svör 


Þann 1. mars verður haldinn fundur um ráðgjafalista fyrir sérfræðinga í sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda, verndun hafs og vatna og verður sá fundur auglýstur sérstaklega á næstu dögum. Kynningarfundir fyrir sérfræðinga á öðrum áherslusviðum verða haldnir síðar á árinu. 

Vakin er athygli á því að opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Heimsmarkmiðasjóði atvinnulífs um þróunarsamvinnu. Frekari upplýsingar má nálgast hér.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á [email protected].

 
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum