Hoppa yfir valmynd
26. nóvember 2020

Nefndarstarf Sameinuðu þjóðanna í New York með óvenjulegu sniði

Hildigunnur Engilbertsdóttir og Ágúst Flygenring við nefndarstörf - mynd
Nefndarstarf á 75. allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna hefur verið með heldur óvenjulegu sniði þetta árið. Flestar samingaviðræður um ályktanir fara fram með rafrænum hætti þó að atkvæðagreiðslur séu haldnar í sölum SÞ. Í tveimur ályktunum sem samþykktar voru á síðustu dögum hefur Ísland verið í leiðandi hlutverki.
Í nefnd um þróunarmál hefur Ísland undanfarin ár tekið að sér að leiða, ásamt Alsír, samningaviðræður um ályktun um eyðimerkurmyndun og landgræðslu, sem samþykkt var samhljóða í vikunni. Fastanefnd Íslands hefur lagt áherslu á landgræðslu um árabil í starfi Sameinuðu þjóðanna enda fyrirfinnst talsverð reynsla og þekking á Íslandi og landgræðsla mikilvægur liður í náttúruvernd og á ýmsa félags- og efnahagslega þætti. Ísland gegnir einnig formennsku, ásamt Namibíu, í vinahópi Sameinuðu þjóðanna um endurheimt lands, en hópurinn kom því m.a. til leiðar að landgræðsla hlyti ríkan sess í heimsmarkmiðunum, sem ríki heims keppast nú við að innleiða á næstu tíu árum.
Í nefnd um félags- og mannréttindi leiddi Ísland í þriðja skipti ályktun um styrkingu mannréttindanefndanna í Genf. Ályktunin er lögð fram í nafni Norðurlandanna, Belgíu og Slóveníu og miðar að því að styrkja starf mannréttindanefndanna í því augnamiði að gera þær skilvirkari. Langt og strangt endurskoðunarferli stendur enn yfir og hefur m.a. tafist vegna COVID-19 heimsfaraldursins, en Ísland hefur verið virkur þátttakandi í ferlinu síðan 2012. Ályktunin var samþykkt án atkvæðagreiðslu og gerðust 66 ríki frá öllum heimshornum, eða u.þ.b. þriðja hvert aðildarríki SÞ, meðflutningsaðilar að ályktuninni.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum