Hoppa yfir valmynd
05.11. 2018 Utanríkisráðuneytið

Vinnustofur í Veröld fyrir félagasamtök í þróunarsamvinnu

Ljósmynd frá Úganda: gunnisal - mynd

Tvær vinnustofur verða í Veröld - húsi Vigdísar í vikunni fyrir félagasamtök í þróunarsamvinnu, önnur á morgun, þriðjudag, og hin síðari fimmtudaginn 8. október. Báðar vinnustofunar verða opnar milli klukkan 17 og 19. Aðgangur er ókeypis og opið fyrir alla.

Vinnustofurnar eru sértaklega miðaðar að félagasamtökum sem ekki hafa mikla reynslu af samstarfi við utanríkisráðunetið á sviði þróunarsamvinnu, en einnig starfsfólki reyndari samtaka sem hafa áhuga á að auka við þekkingu sína. Ráðuneytið hefur sem kunnugt er kallað eftir þátttöku fleiri samstarfsaðila á síðustu vikum, sérstaklega með skírskotun til áherslu á mannréttindi og samstarf við atvinnulífið.

Á vinnustofunni á morgun, þriðjudaginn 6. nóvember, verður farið yfir hvert markmið íslenskra stjórnvalda er með alþjóðlegri þróunarsamvinnu og hvaða virðisauki kann að vera af aðkomu félagasamtaka í málaflokknum. Jafnframt verða stefnumið ráðuneytisins og verklagsreglur í samstarfi við félagasamtök kynnt nánar. 

Á síðari vinnustofuni verður farið nánar í undirbúning, framkvæmd og eftirlit með verkefnum.

Sjöfn Vilhelmsdóttr, forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða við Háskóla Íslands, stýrir vinnustofnunum. Sjöfn hefur jafnframt starfað sem ráðgjafi við umfjallanir um umsóknir félagasamtaka um styrki til þróunarsamvinnuverkefna.

Samstarfstækifæri fyrir íslensk fyrirtæki við þróunarríki?

Utanríkisráðuneytið minnir einnig á morgunverðarfund sem haldinn verður í fyrramálið, 6. nóvember, þar sem nýjar leiðir til til samstarfs á sviði þróunarsamvinnu verða kynntar. Fulltrúar fyrirtækja, frjálsra félagasamtaka og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og heyra nánar um þessa samstarfsmöguleika. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra ávarpar fundinn en María Erla Marelsdóttir skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu ráðuneytisins verður fundarstjóri.

Morgunfundurinn hefst kl. 9:00 á Grandi hóteli í Reykjavík og stendur yfir í tvo klukkutíma.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

8. Góð atvinna og hagvöxtur
3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum