Hoppa yfir valmynd

10 Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála

Dómsmálaráðuneytið
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 10 Réttindi einstaklinga, trúmál og stjórnsýsla dómsmála árið 2024 eru áætluð 26.249,6 m.kr. og aukast um 4.308 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 21,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 6.203,7 m.kr. milli ára eða sem svarar til 30,9%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, til að mynda þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

10.10 Persónuvernd

Starfsemi málaflokksins er í höndum Persónuverndar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Aukið gagnsæi og skilvirkni, lögmæt og sanngjörn vinnsla til að tryggja samræmda vernd einstaklinga á EES-svæðinu.

Þátttaka í Evrópsku samræmingarkerfi.

Persónuvernd

Innan ramma

Þýðing leiðbeininga, tilmæla og ákvarðana EDPB.

Persónuvernd

Innan ramma

Markmið 2: Aukið traust almennings til öryggis við vinnslu persónuupplýsinga í atvinnulífinu og hjá stjórnvöldum.

Fræðsluheimsóknir í grunnskóla landsins.

Persónuvernd

Innan ramma

Uppbygging á virku sambandi milli persónuverndarfulltrúa og Persónuverndar.

Persónuvernd

Innan ramma

Endurbætt miðlun á upplýsingum í gegnum heimasíðu í umhverfi island.is.

Persónuvernd

Innan ramma

Markmið 3: Bætt stefnumótun, vandaðri áætlanagerð og markvissara árangursmat.

Innleiðing á fyrirspurnar- og kvörtunareyðublaði á island.is

Persónuvernd

Innan ramma

Stytting málsmeðferðatíma með Lean-aðferðafræði og rafrænum samskiptum.

Persónuvernd

Innan ramma

Framkvæmd frumkvæðisathugana og úttekta.

Persónuvernd

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 360,6 m.kr. og lækkar um 43,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 25,9 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða. Helstu breytingar í málaflokknum lúta að niðurfellingu 28 m.kr. tímabundinna framlaga vegna starfsstöðvar á Húsavík og norræns fundar persónuverndarstofnana. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 15,1 m.kr.

10.20 Trúmál

Undir málaflokkinn falla útgjöld til starfsemi Þjóðkirkjunnar, kirkjumálasjóðs og kirkjugarða. Þá fellur einnig undir trúmál úthlutun sóknargjalda til skráðra lífsskoðunar- og trúfélaga. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 8.947,6 m.kr. og lækkar um 471,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 653,4 m.kr.

Helstu breytingum í málaflokknum má skipta í tvennt. Annars vegar 383,5 m.kr. lækkun framlags vegna tímabundinnar hækkunar sóknargjalda sem fellur niður. Hins vegar hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins sem nemur 99,9 m.kr. og skiptist hlutfallslega milli kirkjugarða og sóknargjalda.

10.30 Sýslumenn

Starfsemi málaflokksins er í höndum sýslumannsembætta. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Að bæta þjónustu sýslumanna.

Aukið framboð opinberrar þjónustu á landsbyggðinni (ný verkefni).

Dómsmálaráðuneytið, Sýslumannaráð og sýslumenn

Innan ramma

Flutningur verkefna Innheimtustofnunar sveitarfélaga til ríkisins.

Dómsmálaráðuneytið og Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra

296 m.kr.

Bætt aðgengi að þjónustu á vef sýslumanna og efling innviða starfskerfa sýslumanna.*

Sýslumannaráð

Innan ramma

Betri nýting húsnæðis m.a. með auknu samstarfi á milli starfsstöðva og við sveitarfélög, aðrar stofnanir og haghafa.

Dómsmálaráðuneytið og sýslumenn

Innan ramma

Markmið 2: Að bæta stafræna þjónustu sýslumanna.

Aukið framboð stafrænnar þjónustu og lausna (lagabreytingar, umbætur kerfa o.fl.).**

Dómsmálaráðuneytið, Sýslumannaráð og Stafrænt Ísland

60 m.kr.

Innleiðing mælaborðs fyrir tölfræði.

Sýslumannaráð og sýslumenn

Innan ramma

Markmið 3: Að jafna aðgengi að opinberri þjónustu.

Endurskoðun verkefnaskiptingar með það í huga að stuðla að sérhæfingu ásamt því að fjölga störfum á landsbyggðinni.

Dómsmálaráðuneytið, Sýslumannaráð og sýslumenn

Innan ramma

Regluleg fræðsla og endurmenntun fyrir starfsfólk sýslumannsembætta.

Sýslumannaráð

Innan ramma

Samræmt þjónustustig og útgáfa þjónustustefnu (afgreiðsla, biðtími o.s.frv.)

Sýslumenn og Sýslumannaráð

Innan ramma

     

* Verkefnið styður jafnframt við markmið 3.

** Verkefnið styður jafnframt við markmið 1.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 4.022 m.kr. og hækkar um 47,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 293,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 296 m.kr. vegna flutnings innheimtuhluta Innheimtustofnunar sveitarfélaga til sýslumannsins á Norðurlandi vestra í samræmi við lögfestingu frumvarps þess efnis 1. júní 2023 um breytingu á lögum um Innheimtustofnun sveitarfélaga nr. 54/1971 (verkefnaflutningur til sýslumanns).
  2. Niður falla tímabundin framlög að fjárhæð 71 m.kr. Annars vegar 60 m.kr. til að mæta stafrænum umbreytingum hjá sýslumannsembættum og hins vegar 11 m.kr. framlag til sýslumannsins á Norðurlandi eystra.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 150,6 m.kr.

10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytisins

Undir stjórnsýslu dómsmálaráðuneytis falla t.d. rekstur ráðuneytisins, Stjórnartíðindi, Schengen-landamærasjóður o.fl. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Fagleg og skilvirk málsmeðferð stjórnvalda.

Réttarvörslugátt – smíði og innleiðing ferla vegna einkamála hefst.

Dómsmálaráðuneytið

Innan ramma

Schengen – stuðningur við upplýsingatæknikerfi.

Dómsmálaráðuneytið

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 2.219,3 m.kr. og hækkar um 314,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 151,7 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 429,5 sem skiptist í tvennt. Annars vegar 398 m.kr. til að mæta útgjöldum við forsetakosningar. Hins vegar 31,5 m.kr. til áframhaldandi uppbyggingar upplýsingatæknieiningar innan dómsmálaráðuneytisins.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 114,8 m.kr.

10.50 Útlendingamál

Starfsemi málaflokksins er í höndum Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála, Ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðuneytis ásamt félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og Vinnumálastofnun. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Fagleg og skilvirk málsmeðferð stjórnvalda í þágu þjónustuþega.

Lokið verði við innleiðingu á nýju upplýsingakerfi fyrir Útlendingastofnun.

UTL

 

Innan ramma

Innleiðing nýrra ferla til að auka skilvirkni við brottför útlendinga sem hlotið hafa endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd.

RLS

Innan ramma

Markmið 2: Aukin ánægja viðskiptavina og almennings.

Innleiðing á rafvæðingu umsókna um dvalarleyfi og ríkisborgararétt.

UTL/Stafrænt Ísland

Innan ramma

Innleiðing þjónustustefnu.

UTL

Innan ramma

Sameining starfsstöðva – betri nýting mannauðs í þágu viðskiptavina.

Dómsmálaráðuneytið/UTL/ FSRE

Innan ramma

Markmið 3: Greinarbetri aðgengi og upplýsingagjöf um réttindi einstaklinga.

Rafræn samskipti og upplýsingagjöf við umsækjendur efld með því að ljúka innleiðingu þjónustuvefjar og snjallmennis auk þess sem netspjall verður eflt.

UTL

Innan ramma

Umsækjendur hafi aðgengi að upplýsingum um stöðu mála sinna í gegnum nýtt upplýsingakerfi.

UTL

Innan ramma

Innleiðing stafræns pósthólfs.

UTL/Stafrænt Ísland

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 10.700,1 m.kr. og hækkar um 4.460 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 771,3 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið til tveggja ára um 5.000 m.kr. vegna þjónustu við aukinn fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið til tveggja ára um 550 m.kr. vegna kostnaðar við færanlegar íbúðaeiningar til að mæta þeim vanda sem er til staðar vegna húsnæðismála umsækjenda um alþjóðlega vernd.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið til tveggja ára um 300 m.kr. til að vinna áfram niður núverandi málahala og geta haldið þeim starfsmannafjölda sem búið var að ráða til verkefnisins.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 1.196 m.kr. vegna niðurfellingar tímabundinna framlaga. Annars vegar 1.000 m.kr. vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hins vegar 196 m.kr. framlag til að auka málsmeðferðarhraða.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 194 m.kr.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum